Monday, May 5, 2014

Six-pack mission








Er það ekki draumur flestra að vera með sixara, geta setið á ströndinni án þess að vera óörugg/ur með hvort bumban flæði yfir. Ég ákvað að láta draum minn rætast og er komin í brjálað "six-pack" mission. 
Ég myndi mæla með að fá sér einkaþjálfara til að aðstoða sig í þessu missioni. Ég er nú sjálf menntuð einkaþjálfari en það er einhvern veginn þannig allavegana með mig að ég get ekki þjálfað sjálfan mig, veit allt hvað ég á að gera en hlusta ekki á sjálfa mig. Sértaklega með mataræði, ég er alltof mikill matarbangsi, finnst allt sem er með bragði vera himneskt. Ég dett inn í draumaheim þegar ég hugsa um eða borða mat, get endalaust verið að velta fyrir mér samsetningu á mat og hvernig hægt sé að fá sem mesta og besta bragðið úr honum.Ég hef verið svona síðan ég var barn, ég var alltaf seinust frá matarborðinu og meira segja á jólunum þegar krakkar hafa varla lyst á matnum þá sat ég og sönglaði á meðan ég borðaði eftirréttinn hægt og rólega og naut hvers einasta bita. Afi var með sitt árlega grín á meðan við borðuðum jóla matinn til að stríða okkur börnunum um að ekki væri hægt að opna pakkana strax eftir mat útaf hann ætti eftir að fara niður í bát að kíkja ástandið. Ég kippti mér ekki uppvið það , sat bara í mínum matarheimi. 
Þannig núna þegar ég er á svona hreinu mataræði þá er ekki mikil um val til að geta gert bragðmikinn mat, ennn Erla Fanný deyr ekki ráðalaus og ég ákvað að deila þessu með ykkur six-pack-a-hunting vinum mínum :)

Þetta er voðalega basic, ef þú vilt fá sixarann úr felum þá er það bara borða hreint og æfa með. Ekki mikið um sósur og þvíumlíkt. Ég á að borða t.d kjúkling og sætar kartöflur í hádegis og kvöldmat. 150gr af kjúkling , 40gr af sætum í hádeginu og 60gr um kvöldmat. Trixið mitt til að hafa þetta auðvelt og fljótlegt er að elda heilan kjúkling, set ekkert krydd bara olíu (ég krydda hann síðan þegar ég hita hann upp). Ég elda líka heila sæta kartöflu með alskonar og mismunandi kryddum og geymi í boxi. Mjög þæginlegt því þegar ég þarf að borða þá ríf ég 150gr af kjúklingnum niður og vigta það sem ég þarf af sætum. Elska þessa aðferð því þá ræð ég hvort ég fái mér bringu eða læri. Ég fékk pínku ógeð á bara kjúklingabringum á sínum tíma , fínt að hafa val.

Í þetta skipti eldaði ég sætu kart. með engifer, ferkum chilli og timian kryddi. Ég elska timian kryddið á kartöflurnar, finnst það ómissandi.Sker sætu í bita (með hýðinu, miklu fljótlegra) set þetta allt í eldfast mót og olíu yfir í sirca 50 mín.

Það sem þú þarft í réttinn:

150 gr af kjúkling
1 tómat
3-4 sveppi (ég vill hafa mikið af sveppum, getur sett færri).
5-7 baunaspírur
2 hvítlauksgeira
Sítrónupipar (það er töfrakyddið mitt, nota það á allt)




Ég byrja á að hreinsa innan úr tómötunum, annars kemur of mikið vatn í réttinn. Ég set þetta allt í pott, finnst það koma betur út. Ég set smá olíu í pottinn og hita á vægum hita, trixið við þennan rétt er að hægelda hann.
Sker svo tómatana niður og hendi í pottinn.

 Tek ég næst tvo hvítlaukgeira og pressa þá ofan í pott með hvítlaukspressu. Læt tómatana og hvítlaukinn malla aðeins.
Sker ég síðan rest af grænmeti og bæti við. Ég skipti oft út grænmetinu til að hafa .þetta fjölbreyttara. T.d ferskt spínat, graslauk eða bara það sem ég er í stuði fyrir. 
Vigta ég þá sætu kartöflurnar og set með, leyfi þessu að malla í smá stund.


Næst krydda ég kjúklinginn sér með sítrónupipar og bæti honum síðan við.


Hræri vel í þessu og búmm þetta er ready. 
mmmmhhhh elska þetta og hlakka alltaf til að borða
Omm Omm verði þér að góðu <3